Ath.Pebbles

Það er eitthvað að þessu bloggi. Fer aftur á skítablog.central.is/thevalrus. hilsen

vaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaáá!Pebbles

Ég var búin að bíða eftir gærdeginum í langann tíma. Loksins, loksins rann hann upp og við hjúin skunduðum í fríkirkjuna.  Ég hafði ekki hugmynd um það hvað beið okkar. Rosalegt performance og rosalegir tónleikar. Stúlka sem kallar sig St. Vincent hitaði upp og var frábær (ég er ekki að spara góðu lýsingarorðin;)). Undurfögur tónllist og ég fékk ekki nóg. Sem betur fer var Sufjan á leið á sviðið næst svo maður fyrirgaf henni þegar hún fór. Hann átti án efa hug og hjörtu allra þarna inni því stemmningin þarna var æðisleg. Sufjan var rosalegur, sem og allir hinir 9 sem voru á sviðinu og spiluðu með honum. Ég var með krónískar gæsabólur og sólheimabros allann hringinn. 
Við hjúin stálum minjagripum og þið sem farið á næstu tónleika með þeim og spáið í það hversvegna einn gaurinn er ekki með báða vængina....þá vitiði hvar hann er að finna;)

þvílíkur unaður, ég varð bara að segja ykkur frá þess. 

Takk Sufjan, fyrir langsamlegabestu tónleika sem ég hef farið á. 
Takk líka Inga og Jói fyrir æðislegt matarboð og takk Tinna og Lilja fyrir miða og óvænt sætapass fremst. Hobbitinn sá allt sem gerðist þökk sé ykkur:D

Kongsins KöbenhavnPebbles

Jæja þá er komið að nýjasta fréttaflutningnum frá koben, þar sem frostið ríður rækjum. Við sitjum hér með grýlukerti á nebbunum innpakkaðar í tvær sængur flísteppi ömmuullara og mörgum öðrum flíku, en ég held virkilega að einhver hafi gleymt að einangra húsið.

Flugið var fínt, ég komst heil, þrátt fyrir dönsku beygluna í sætinu fyrir framan mig sem ákvað að auðvelda mér ekki hreyfinguna í tímavélinni góðu. 
Ég lenti síðan eftir að hafa eignast huggulega vini í tíundabekk í Arbæjarskóla, alveg að fara að stinga þessum krúttum í vasann. Þeir gáfu mér rosalega mikið af stigum fyrir að vita hvað warcraft væri og ekki nóg með það heldur vissi ég líka hvað counterrstrike var. Þar með var okkar vinasamningur innsiglaður, þrátt fyrir að ég væri aaaaaaaalveg "tuttugu og eitthvað KONA". Sárnaði smá endirinn á þessari annars huggulegu romsu;) 

Bibban mín beið mín á vellinum og voru það ekki amalegir langþráðir endurfundir. Við droppuðum ekki töskunum heim heldur fórum við beint með hafurtaskið á næstu krá í keyptum okkur danskt gull og biðum þess að stelpurnar kæmu uppstrílaðar að hitta Ingibjörgu því hún var búin að lofa þeim surprisi og þær væru að fara eitthvað. Bibba henti mér niður á bekk, meira samt í fangið á einhverjum dönskum verkamanni sem skildi ekki alveg hvað var að gerast. Þetta var síðan ekki amalegt surprise og stelpurnar fyrirgáfu okkur fljótlega alla lygina. Mikill bjór mikil gleði. Það var rosalega gaman að hitta vinina mína aftur. 

Ég náði síðan Kidda líka í lygavef og hann greyið dröslaðist niður í bæ að hitta Ingibjörgu og na í mjög þungann afmælispakka sem hún nennti ekki að dröslast með. Auðvitað var hobbitinn að verki og pakkinn var í þyngri kantinum. En ánægður var hann held ég. 
Gleði mín var samt spes í dag, allavega í þá 4 tíma sem ég eyddi hjá Heidi Sommer í nemavaxi hjá Heiðu og Guggu. Auðvitað fékk ég ásamt vaxinu andlitsnudd og Andlitshreinsun..sem ég held að sé fínt nafn yfir slæma meðferð á vinkonu sinni. Andlitsnuddið var framið í sömu andrá og loðbuxurnar voru slitnar af mér með rótum. Svo ég held að þetta hafi verið til að dreifa athyglinni og fínisera fólskubrögðin. En að öllu gamani slepptu, takk snúllurnar mínar. Ég kaupi mér gammósíur á morgun til að halda á mér hitanum í dk....fyrst hinar eru í ruslinu hjá Heidi. 

HM fékk ölmusu í dag frá listnemanum en það klikkar aldrei.. Eitthvað verður þetta skoðað samt betur á morgun;)
Hlakka til helgarinnar það verður mikið gaman mikið fjör, en samt er eitthvað tómlegt í hjartanu. Söknuður og enginn froskur til að hoppa á hausnum mínum fyrir dögun. 
Gullmaður og Mattamús. Knús yfir sjóinn mikið hlakka ég til að sjá ykkur. 

Pebbles

Ég var að lesa dagblöðin yfir ristaða brauðinu mínu áðan og ég get ekki annað en byrjað að blogga. Það er svo margt að gerast sem ég er alveg lens yfir og á ekki eitt aukatekið orð...reyndar jú og ætla barasta að skrifa þau. 

Hvað er málið með að vera að hefja hvalveiðar að nýju, er þetta í lagi? Ég myndi kalla þetta skref afturábak og ekkert nema ögrun við aðrar þjóðir. 
-Við megum þetta og gerum það ef okkur sýnist svo! 
Fá skynsamleg rök hafa komið meðfylgjandi þessari ákvörðun en ég verð að segja fyrir mitt leyti að ég hef alveg fundið nokkð margar sem mæla gegn þessu rugli.
Gróðinn á aldrei eftir að deilast á landann, heldur verður þetta aldrei fé nema í einum vasa. Er það nóg? 

....Ef það verður gróði það er að segja.

 Það er ekki búið að gera neina samninga við japana hvað þetta varðar og þykir mér það algjör firra að vera að ráðast í þetta verk með enga kaupendur. Þó svo hagnaður komi af þessu þá tel ég hann aldrei eftir að vinna upp það tap sem verður á viðskiptum með íslenskar vörur erlendis og auðvitað ferðamenn sem eiga auðvitað eftir að mótmæla þessum fáránlegu veiðum með því að koma ekki hingað. 
Þau rök sem ég hef heyrt sem eiga að mæla með þessu eru sú að "helvítis Hvalurinn er að éta allann fiskinn!" 
Það þykir mér undarlegt að segja, því magnið sem við veiðum á ári af fiski er ekki lítið  og ástæða fyrir því að kvótinn var settur á var vegna þess að við vorum að klára fiskinn ekki af því að hvalirnir voru svona sjúklega svangir bara á síðustu 50 árum.  En ekki mæli ég með þessu kvótakerfi en það er önnur ritgerð. 

En ég ætla að fara að lesa mér meira til um þetta efni svo ég geti nöldrað betur og meira pro;)

fokkPebbles

tekið af mbl.is

Greindir risar og heimskir púkar eftir 100.000 ár?

Breskur þróunarfræðingur, Oliver Curry, spáir því að mannkynið muni skiptast í tvær undirtegundir á næstu 100.000 árum. Annars vegar verði fólk hávaxið, grannt, hraust, gáfað og skapandi en hins vegar óæðri tegund manna sem verði ekki eins greind en það fólk verði ófrítt og kubbslegt. Reynist þessi spá rétt má búast við því að jarðarbúar verði annað hvort greindir risar eða heimskir púkar.



Hahahaahaha....ætli afkomendur mínir eigi eftir að þakka mér fyrir?


12. oktPebbles

Á fimmtudaginn var ár liðið síðan við ég sat á bekk í dómkirkjunni og horfði á fallega systir mína í hvítum kjól, ganga upp að altarinu og eiga manninn sinn hann Gústa. Þetta var án efa fallegasta brúðkaup sem ég hef orðið vitni að, sólin skein inn um gluggana og systir mín ljómaði af hamingju. Fiðluleikarinn lék af gleði og allt var svo fallegt. 
Fiðlurnar léku á ný en ekki af kátínu heldur sorg. 
Með gleði í hjarta yfir þessu fallega degi græt ég systir mína sem náði ekki að upplifa fyrsta brúðkaupsafmælið sitt. 
En þakklát er ég yfir því að hún hafi fengið að eiga þennann yndislega dag.  

Ég tek undir með systir minni litlu og segi takk. 

Takk..




Allt að komast í gangPebbles

Er enn að koma mér í gang með skrifin. Virðist ætla að taka lengri tíma en ég bjóst við. Ekki gefa mig samt upp á bátinn...;)
Setti inn lykilorð til þess að losna við leiðinleg komment frá afbrýðisamri piparjúnku einhverstaðar í gettói wherever. 

Later mates.

P.S. Lag dagsins Fidelity með Reginu Spector. Ryksugan á fullt og dansöxlin með...

Jessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjess!!Pebbles

Jessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjessjess
!!!








Færsla loksins:)Pebbles

Jæja það var þá dagurinn til að byrja bloggið. Er búin að vera með gubbupest og öllu sem því fylgir:S Við Matthildur erum að deila þessari pest bróðurlega á milli okkar og nú er bara keppni hver losnar fyrr við hana. Við erum líka mikið að spá í það hversvegna Óli er svona fjandi hress?? 

við erum búin að hfa það ágætt fyrir utan þessi veikindi. Það var blásið til veislu á föstudaginn og skemmtil ég mér konunglega, enda tilefnið ekki af verri endanum. Afmæli prinsessunar. Komin langt í þrítugt eftir því sem ökuskírteinið tjáir mér. Það segir mér reyndar líka að það sé löngu útrunnið en það er önnur saga...

Það kom ansi mikið meira af fólki en ég bjóst við og úr öllum áttum, það var eins gott að bollan var spækuð betur þar sem þetta var heldur pínlegt fyrst. Enda afmælisprinsessan of sein að vanda og var enn að skrúbba klósettið á handklæðinu einu saman þegar fyrstu gestirnir bönkuðu, kemur á óvart. 

Svo var þetta hið prýðilegasta afmæli. Allir hunsuðu bón mína um engar gjafir og fékk ég hvert fíneríið á fætur öðru, límbyssu leikhúsmiða, enda ekki þekkt fyrir að fara oft í leikhús, nú hef ég ástæðu til að bæta úr því. Falleg glös, lím í límbyssuna með gullglimmeri, póstkort úr uppáhaldsbókunum mínum "Bunny suesides" græna diskóskó og ég gæti endalaust talið lítranaa af víninu sem mér barst, takk fyrir mig kæru vinir. 

Shit ótrúlegt hvað Bush er mikið fífl, var að horfa á youtube af allskonar mismælum hans nýverið, þetta er ekkert grín, reykjandi apinn myndi koma meira viti frá sér. 

Já ég er farin að sakna vinanna minna sem eru búnir að stinga af, Danmörk, Ástralía, hvað er málið. Nú er ég að reyna að vinna í þvi að komast til Köben fyrir jól og krossið puttana kæru vinir, ég veit hvar seðlabankastjóri á heima...mwoahaha.

Reynda var ég bara að heyra að vildapunktarnir væru vænlegir til flugs, svo ef innistæðan segir já þá smelli ég á mig sofiu lauren gleraugunum mínum, skenki sjálfri mér einni blóðugri maríu og flýg af landi brott í leit af vinunum mínum.
 
YO MERMAID, HERE I COME! (puttaríkross)


Nýjasta uppgötvun mín, mér til ómældrar ánægjuPebbles

Ray Ceasar

Auglýsing

Atburðarteljari

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...